Loading Events
  • This event has passed.

13. maí 2023 @ 18:00 - 23:30

Stærsta EUROVISON partý landsins

EKKI MISSA AF ÞESSU 😉

Stærsta EUROVISION partý landsins á Sviðinu.

Það verður sannkölluð Eurovision veisla á Sviðinu 13. maí næstkomandi.

Söngvakeppnin verður sýnd í beinni á risaskjám, snakk í boði hússins og Eurovision góðgæti á tilboði. Það verður mjög vegleg getraunakeppni fyrir gesti og fullt af skemmtilegur vinningum.

Eini Sigurvegari Eurovision sem Selfoss hefur alið – Einar Bárðarson, Eurovision sérfræðingur verður veislustjóri kvöldsins

Hin danska Emmelie de Forest sem sigraði Eurovision með laginu Only teardrops fyrir sléttum áratug mætir á svæðið og baðar okkur í Eurovision stemningu.

Í framhaldi mun plötusnúðurinn ofurhressi DJ GASSI KLING blasta bestu Eurovison lögunum fram á nótt þar sem tilvalið er að syngja lítið lag með lífsgleðina sjálfa í brjósti þér

Láttu þig ekki vanta í alvöru stuð á Sviðinu og látum töfra lífsins taka af okkur völd.

Áfram Ísland – Áfram Diljá!

Aðgöngumiðinn verður á frábæru verði – aðeins 1986 krónur sem er einmitt árið sem við tókum fyrst þátt í Eurovision!   Innifalinn í honum er EURO-kokteillinn „Douze points“ , Euroborgari, happdrættisvinningar ofl ofl“ Gjöf en ekki gjald. Miðar verða fáanlegir á tix.is

Miðaverð er 1986 Gleðibanka krónur – innifalið er júródrykkurinn „Douze points“ og Grillaðir borgarar. Og svo verða Happy Hour verð á barnum meðan á keppni stendur.

Mættu snemma því Sviðið mun slá upp grillveislu á torginu og bjóða þér í Euro-börger milli 18:00 og 20:00.

Hvetjum vinahópa og vinnustaði að sameinast og þétta hópinn almennilega fyrir sumarið. Það verður hægt að bóka borð hjá okkur og hægt að koma yfir daginn og skreyta sitt borð. – Flottasta hópaborðið fær flöskuborð á miðnætti.

Miðbar

Hafðu samband

Hafðu samband og pantaðu flöskuborð eða talaðu við okkur um viðburðinn þinn á Hæðinni. Þú getur líka náð á okkur í síma +354 547 0102.

Merktu með #midbar

Facebook icon
Instagram icon
© Miðbar 2024
Vefverk: Gasfabrik