Hæðin er efri hæðin á Miðbar og skartar fallegu útsýni yfir miðbæinn af stórum þaksvölum. Við leigjum Hæðina út og getum tekið á móti um 50 manns í sæti og allt að 80 manns í standandi samkomur. Einnig er hægt að panta flöskuborð fyrir hópinn þinn. Hafðu samband og bókaðu viðburðinn þinn.
Á Hæðinni er snyrtilegur bar og tvö svæði með sófum og stólum í bland auk salerna fyrir hæðina. Hæðin býr yfir góðu hljóðkerfi fyrir ræður, tónlist og söng.
Tveir myndvarpar eru í salnum auk flottrar stemningslýsingar sem gerir Hæðina að tilvöldum stað fyrir minni og stærri veislur og viðburði.
Hægt er að leigja Hæðina fyrir einkasamkvæmi með veitingum og eru nokkrir valmöguleikar í boði. Hæðin rúmar 50 manns í sæti og 80 manns í standandi samkomu.
Hafðu samband í gegnum síma 868-4799 eða sendu okkur póst á midbar (at) midbar.is og fáðu tilboð í viðburðinn þinn.